Það er mjög einfalt að finna út hvernig best er að setja á sig kinnalit eða blush, eftir andlitsfalli þínu. Hér eru þrjár aðferðir á þrjár tegundir andlitsfalla, sem sýna hvar þú átt að bera á þig ferskan roða í kinnarnar.
Sjá einnig: Lítur þú fagmannlega út?
Langt andlit – Settu litinn hringlaga á kinneplin eða rétt fyrir ofan þau. Ef þú ert að nota kinnalit með glansi í, skaltu fara varlega og frekar bera hann á þig aðeins ofar á kinnarnar, svo það gefi lyftingu.
Kringlótt andlit – Settu litinn á ská frá eyra í átt að munni og blandaðu vel. Reyndu að nota frekar mattan kinnalit vegna þess að glans getur látið andlitið líta út fyrir að vera enn kringlóttara.
Ferkantað andlit – Berðu litinn á í bogadregnum hreyfingum undir kinnbeinin til þess að koma í veg fyrir að anlitið líti úr fyrir að vera of ferkantað. Það mun draga athyglina að kinnunum, frekar en kjálkanum.
Heimildir: womendailymagazine.com
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.