Þessi dýrð er frá Freistingum Thelmu.
Innihald
3 stk eggjahvítur
170 g sykur
2 msk flórsykur
½ tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
100 g súkkulaði bráðið
150 g lakkrískurl
Aðferð
Hrærið eggjahvítur og sykur saman þar til blandan verður hvít og stíf. Bætið flórsykrinum og lyftiduftinu saman við ásamt vanilludropunum og hrærið vel. Blandið lakkrískurlinu saman við og hrærið með sleif og setjið til hliðar. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði þar til það hefur bráðnað alveg. Hrærið ekki súkkulaðinu saman við marengsinn heldur slettið helmingnum af því yfir marengsinn og setjið rúmlega 1 matskeið af marengs í hverja köku og setjið á bökunarplötu með smjörpappír. Þegar þið hafið sett helminginn af marengsinum á bökunarplötuna setjið þá restina af súkkulaðinu ofan á marengsinn og klárið að setja á bökunarplötuna. Bakið við 150°c í rúmlega 40 mínútur eða þar til marengstopparnir eru orðnir þurrir viðkomu. Látið toppana standa aðeins þegar þið takið þá út úr ofninum áður en þið takið þá af plötunni.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.