Fyrir 2
Innihald
- Hálfur kjúklingur, grillaður og skinnlaus
- 2 stórir, þroskaðir bananar, sneiddir gróft
- Hálf rauð paprika, sneidd þunnt
- Hálfur rauður chili pipar, sneiddur þunnt
- 2 hvítlauksrif, afhýdd og söxuð smátt
- 40 g rúsínur
- 1 msk maísmjöl, leyst upp í 2 msk af vatni
- 100 ml hrein jógúrt
- 0,5 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
- 1 lárviðarlauf, mulið mjög smátt
- 200 ml vatn
- 1 gerlaus grænmetisteningur
Aðferð
- Rífið allt kjöt af kjúklingnum og setjið í eldfast mót (óþarfi að smyrja mótið).
- Sneiðið bananana og raðið þeim ofan á kjúklinginn.
- Skerið paprikurnar og chili piparinn langsum, fræhreinsið og sneiðið þunnt. Raðið sneiðunum ofan á bananana.
- Afhýðið hvítlaukinn og saxið smátt. Setjið til hliðar.
- Blandið maísmjöli og 2 msk af vatni saman í stórri skál og hrærið jógúrtina út í.
- Sjóðið vatn og leysið grænmetisteninginn upp. Setjið út í skálina ásamt muldu lárviðarlaufinu, hvítlauknum og rúsínunum. Látið standa í um 10 mínútur.
- Hrærið jógúrtinni varlega út í stóru skálina. Blandið vel saman.
- Hellið sósunni yfir kjúklinginn.
- Hitið við 180°C í 10-15 mínútur.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.