Á fimmtudagskvöld verða haldnir stórir tónleikar í Hörpu til styrktar ljósmyndaranum og margmiðlaranum Ingólfi Júlíussyni.
Hann hefur barist við hvítblæði sem hann greindist með fyrir um 5 mánuðum og hefur verið óvinnufær síðan þá. Ingólfur hefur farið í 3 erfiðar lyfjameðferðir sem ekki hafa borið árangur og hefur meðferðum nú verið hætt.
Ingólfur hefur verið mjög jákvæður allt þetta ferli og er það ennþá og segist í samtali við hun.is vera farinn að leita sér óhefðbundinna lækninga. Hann segist líka ætla að hafa það sem allra best með fjölskyldu sinni og vinum: „Ég er að ná um þreki eftir spítalalegu og sýkingar og er rosalega bjartsýnn á allt og ætla að njóta hverrar mínútu.“
Ingó er í meðferð hjá Kolbrúnu grasalækni og segist ekki vera frá því að það sé að virka.
Á tónleikunum munu margir flottir listamenn koma fram og allt fólkið sem fram kemur gefur framlag sitt til tónleikanna. Meðal þess eru Ari Eldjárn, Hörður Torfason og hljómsveitirnar og tónflokkarnir Bodies, Dimma, Fræbbblarnir, Hellvar, Hljómeyki, Hrafnar, KK, Nóra, Nýdönsk, ÓP-hópurinn og Q4U.
Miðasala á midi.is
Þeim sem ekki komast á tónleikana en vilja styrkja Ingólf og fjölskyldu hans er velkomið að leggja inn á eftirfarandi bankareikning: Banki: 0319 Hb 26. Reikningsnúmer 002052. Kennitala: 190671-2249.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.