Juliana Farris Mazurkewicz var að sækja börnin sín á leikskóla í Houston í Texas þegar hún sá að það var búið að hengja upp þessa orðsendingu við innganginn.
Hún birti þessa mynd á Facebook hjá sér og myndin hefur vakið óskipta athygli. Hún sagði líka frá því að hún hefði ekki séð neinn í símanum síðan þetta var sett upp.