Þessi æðisgengni kjúklingur kemur frá Café Sigrún.
Thailenskur kjúklingur í hnetusósu (Satay)
- 2 stórar eða 3 litlar kjúklingabringur
- 4 hvítlauksrif
- 4 skallottlaukar
- 1 stilkur sítrónugras (e. lemon grass), hvíti hlutinn eingöngu
- 2 tsk kókosolía
- 2 tsk karrí
- 1 tsk engifer
- 0,25 tsk turmeric
- 0,25 tsk negull
- 0,25 tsk cardimommur
- 1 tsk coriander
- 1 tsk chili pipar eða paprika
- 1 msk tamarisósa (eða meira eftir smekk)
- 400 ml kókosmjólk
- 3 kúfullar matskeiðar af grófu hnetusmjöri (úr heilsubúð)
- 4 dropar stevia án bragðefna eða 2 tsk agavesíróp
- Svartur pipar eftir smekk
- 175 g hrísgrjónanúðlur (helst úr brúnum hrísgrjónum)
Aðferð
- Steikið kjúklinginn í 1 tsk kókosolíu. Haldið kjúklingnum heitum án þess að steikja meira. Bætið vatni við á pönnuna ef vantar meiri vökva.
- Afhýðið laukana og hvítlaukinn og saxið smátt.
- Afhýðið sítrónugrasið og sneiðið hvíta hlutann í afar þunnar sneiðar.
- Hitið 1 tsk kókosolíu á stórri pönnu og steikið laukinn, hvítlaukinn og sítrónugrasið í nokkrar mínútur. Bætið vatni við á pönnuna ef vantar meiri vökva.
- Bætið kryddinu út í (karrí, engifer, turmeric, negull, cardimommur, coriander og chili) og hitið í nokkrar mínútur eða þangað til allt fer að ilma.
- Blandið saman í nokkum stórum potti; kókosmjólk, hnetusmjöri, tamarisósu, pipar og steviadropum. Hellið því sem er á pönnunni út í pottinn og hrærið vel.
- Hitið varlega þangað til sósan er orðin ágætlega þykk. Hrærið mjög oft.
- Sósan á að vera það þykk að hún loði aðeins við bakið á teskeið ef henni er dýft ofan í sósuna, samt það þunn að hún fljóti vel yfir núðlurnar og kjúklinginn.
- Ef sósan er of þykk getið þið sett smávegis af vatni út í.
- Sjóðið hrísgrjónanúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og síið vatni frá þegar þær eru tilbúnar.
- Setjið hrísgrjónanúðlur á hvern disk. Setjð kjúklinginn eða grænmetið/tofuið ofan á núðlurnar. Hellið heitri sósunni yfir eða berið fram í sér skál
- Berið fram með grænum, flötum baunum eða sojabaunum (e. edamame).
Fylgstu með öllum nýjustu uppskriftunum á Facebook síðu Café Sigrún
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.