Andrea Jónsdóttir, útvarpskona og rokkamma, smalaði saman okkar færustu söngkonum til að spreyta sig á lögum Janisar, ásamt 8 manna hljómsveit.
Söngvarar sem koma fram eru Andrea Gylfa, Salka Sól, Bryndís Ásmunds, Stefanía Svavars og Lay Low, ásamt 8 manna hljómsveit.
Andrea Jóns verður svo að sjálfsögðu á staðnum til að skála við salinn, en á barnum verður sérstakur Janis Joplin Southern Comfort drykkjarseðill.
Tónleikar hefjast 19.janúar kl 21. Miðasala er á www.tix.is
Við ætlum að gefa heppnum vini okkar miða fyrir tvo á þessa svakalega flottu tónleika. Það sem þú þarft að gera er að deila þessari grein og segja okkur hvern þú myndir taka með þér á tónleikana.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.