Tatyana Rybakova var of feit allt frá 14 ára aldri. Hún var lengi um 105 kíló og hafði reynt allskyns megrunarkúra og svokallaðar “töfralausnir” til að reyna að grennast en ekkert hafði gengið. Hún hafði prófað einn kúr þar sem hún mátti bara borða epli og jógúrt, annan þar sem hún mátti ekki borða ávexti og svo prófaði hún að reyna að forðast öll kolvetni.
Allir þessir megrunarkúrar höfðu slæm áhrif á heilsu hennar og hún gafst alltaf upp á endanum og þyngdist meira. Tatyana gafst upp á þessu og ákvað að prófa aðrar aðferðir.
Hún breytti lífstíl sínum til hins betra, byrjaði að borða holla og næringarríka fæðu og fæðu sem var rík af próteini. Tatyana byrjaði að hreyfa sig reglulega og synda. Tatyana missti um 51 kíló með því að borða holla og næringarríka fæðu og hreyfa sig reglulega. Hér fyrir neðan getur þú séð myndir af breytingunni en myndirnar eru allar af sömu stelpunni.