Á heimasíðunni Allskonar er að finna mjög margar góðar uppskriftir og við rákumst á þessa þarna inni. Þetta lítur stórkostlega út.
Fiskur með mangó og kókos fyrir 4
- 500gr hvítur fiskur, bitar
- 50 gr kókosmjöl
- 100gr frosinn mangó, bitar
- eða 1 nýtt mangó í sneiðum
- 8 skallottulaukar, sneiddir
- 1 tómatur, saxaður
- 2 græn chili, fræhreinsuð
- 2 hvítlauksrif, marin
- 2 cm engiferrót, rifin
- 1 tsk túrmerik
- 1 tsk chiliduft
- 1 tsk karríduft
- 1/2 tsk fennelfræ
- 1/2 tsk sinnepsfræ
- 1/4 tsk fenugreek fræ (má sleppa)
- 2 lárviðarlauf, mulin
- 1 msk kókosolía
Undirbúningstími: 20 mínútur
Eldunartími: 20 mínútur
Settu kókosmjöl, helminginn af skallottulaukunum, fennelfræin og allt malað krydd (ekki fenugreek eða sinnepsfræ) í matvinnsluvél ásamt 2 dl af vatni. Maukaðu vel saman í mjúka sósu.
Settu kókosblönduna í pott, bættu við tómatnum, grænu chili (fín eða grófskorið, þú ræður), engifer, hvítlauk og 500ml af vatni. Settu mangóbitana út í og smá salt ef þú vilt. Blandaðu vel saman og láttu sjóða í 5 mínútur.
Settu nú fiskinn í bitum út í pottinn, settu lok á pottinn og leyfðu þessu að sjóða í 5-8 mínútur.
Á meðan steikirðu á pönnu kókosolíuna, sinnepsfræin, fenugreek fræin og sneidda skallottulauka (4 stk) þar til fræin fara að poppa og laukurinn er brúnaður. Þá blandar þú laukblöndunni út í fiskipottinn.
Berið fram með fullt af góðum hrísgrjónum.
Endilega líkið við Facebook síðu Allskonar.