Ég elska, elska, elska þessar glasamottur. Ég fékk 6 stykki fyrir 10 krónur í Rúmfatalagernum og með mitt hugmyndaflug þá er aldrei að vita hvað maður getur búið til.
Hérna eru 2 hugmyndir. Bekkjasystir sonar míns bauð í afmæli og ég ákvað að gera skilti með nafninu hennar.
Ég málaði glasamotturnar ljósbláar og notaði uppáhalds aðferðina mína til að láta stafina hennar á skiltið með hvítum paint marker en ég elska þá. (þið getið rifjað upp aðferðina hérna)
Svo límdi ég borða aftan á skiltið, bjó til slaufu efst og festi hring af gosdós aftan á slaufuna svo að vinkonan gæti hengt upp nýja skiltið sitt.
Hérna er svo önnur hugmynd.
Ég málaði 4 mottur svartar og þurrmálaði þær svo hvítar. Svo notaði ég sömu aðferð og setti upphafsstafi okkar fjölskyldunnar á skiltin/glasamotturnar, boraði 2 göt í hvora glasamottu fyrir sig og þræddi tvinna í gegn. Þannig, eins og þið sjáið, það eina sem stoppar er hugmyndaflugið.
Ég heiti Kristbjörg og ég er 2 barna móðir sem elskar föndur, að skapa með höndunum, að búa til eitthvað úr engu og að reyna að auðvelda mér lífið með því að skipuleggja, skipuleggja, skipuleggja.