Það er ótrúlegt til þess að hugsa hversu mikill hryllingur er í þessum heimi. Það eru til börn sem lifa í algjöru öryggi, hafa allt til alls, mat og ást, menntun og framtíð. Svo eru til börn sem hafa ekkert af þessu. Uğur Gallenkuş býr í Istanbúl í Tyrklandi og hann setti saman þessar myndir hér fyrir neðan. Hann segist vera að reyna að sýna fram á hversu miklum vanda heimurinn stendur frammi fyrir. Óréttlæti og stríð er eitthvað sem viðgengst daglega og hann vildi sýna það svart á hvítu með því að setja saman tvær myndir.
Uğur sagði:
Ég vil sýna fram á hversu mikill munur er á þróuðum og vanþróuðum löndum. Skilaboðin sem ég vil senda eru margþætt. Þróuð lönd búa við lúxus og frið, en ég vil minna á að fólk í vanþróuðum löndum býr við þjáningar, hungur og stríð.
Hér má sjá börn sem hafa týnt foreldrum sínum, nota gangstéttina sem kodda í Írak árið 2013.
Mynd: Emrah Yorulmaz
Barn situr á ónýtum skriðdreka í Sýrlandi árið 2015.
Mynd: Yasin Akgül
Barn stillir sér upp með byssu í æfingabúðum á tímum borgarastríðsins í Líberíu.
Mynd: Patrick Robert
Sýrland
Mynd: Mohamad Abazeed
Abu Omar (70), reykir pípuna sína í eyðilögðu svefnherbergi sínu í Sýrlandi og hlustar á plötu.
Mynd: Joseph Eid
4 ára sveltandi barn í Yemen.
Mynd: Essa Ahmed
Fólk safnast í kringum stóran brunn í Indlandi árið 2003.
Mynd: Amit Dave
Lítill drengur fær sér vatnsopa í Suður Súdan í desember 2005. Hann er að drekka úr á sem heitir Akuem. Aðeins þriðjungur íbúa hefur aðgang að góðu drykkjarvatni og mikil hætta er á að fá sjúkdóma úr drykkjarvatninu.
Mynd: Georgina Cranston
Fjölskylda í Sýrlandi og í ónefndu þróuðu landi
Mynd: Murad Sezer
Sýrlenskur flóttamaður heldur á dóttur sinni yfir landamærin í Grikklandi.
Mynd: Yannis Behrakis
Barn í Sýrlandi og í ónefndu þróuðu landi
Mynd: Abdullah Hammam
Vickie er 4 ára og heldur á litlum hárbursta á leið í flóttamannabúðir.
Mynd: Jerome Delay
Stríðið bitnar vitaskuld á börnunum. 10 börn úr sömu fjölskyldunni voru að ganga í skólann í fyrra þegar þau komu að virkri sprengju, sem er mjög algengt að rekast á í Afganistan. Börnin vissu ekki hvað þetta var og tóku sprengjuna upp til að sýna frænku sinni. Þrjú börn létust og sjö börn misstu að minnsta kosti einn útlim. Þetta er alls ekki eina dæmið því þúsundir barna og óbreyttra borgara hafa dáið í svipuðum aðstæðum.
Mynd: Noorullah Shirzada
Særð kona yfirgefur spítala í Sýrlandi
Mynd: Manu Brabo
Hinn 4 ára gamli Ali Nassar Fadil missti vinstri fót og handlegg þegar Bandaríski herinn gerði loftáras í Fallujah í Írak. Afi drengsins og 9 aðrir létust.
Mynd: Paula Bronstein
Lítil stúlka í hópi barna sem flúðu frá Myanmar til Bangladesh í september 2017.
Mynd: K.M. Asad
Það má sjá meira frá þessum manni á Instagram
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.