Ég átti von á vinkonu í heimsókn um daginn sem ég hef ekki hitt í rúm 2 ár. Spjöllum reglulega á Facebook og ég hef tekið eftir því hversu dugleg hún er í ræktinni og yoga (hangir á hvolfi í einhverju taui!) Þorði ekki að hafa eitthvað gummilaði úr hveiti með kaffinu svo að ég fann þessa uppskrift á netinu og ég get fullvissað ykkur að þessar sítrónu bombur runnu niður og ég sendi henni síðar um daginn þessa súper auðveldu uppskrift.
- 170gr hreinn rjómaostur
- 60gr saltað smjör
- 1/2 bolli af fínu möndluhveiti
- 30gr stevía sykur
- 2 tsk sítrónusafi
- rifinn börkur af 1/2 sítrónu
- 1 tsk stevia vanillu
- 1 bolli af organic kókosflögum
Aðferð:
Leyfði rjómaostinum og smjörinu að ná stofu hita. Blandið öllu hráefninu saman í skál nema kókosflögum, þar til að það er orðið að deigi. Skellið skálinni í frystir í 10 mínútur. Takið út mótið kúlur í ykkar stærð. Ég setti smá auka sykur í kókosflögurnar og blandaði vel saman áður en ég velti kúlunum uppúr því. Kúlurnar fara svo aftur í frystir í 20-30 mínútur. Njótið strax eða geymið í góðu lokuðu íláti í ísskápnum.
Fann þessa uppskrift hér og hvet ykkur til að skoða meira á þessari síðu.