Liam Hemsworth, fyrrverandi eiginmaður Miley Cyrus, hefur látið lítið fyrir sér fara síðan þau skildu fyrr á þessu ári. Hann virðist þó vera tilbúinn að láta sjá sig á ný en hann var á labbinu í New York á fimmtudag með þessari konu.
Liam og konan fengu sér mat og drykk í Sant Ambroeus og fóru svo í rómantíska göngu.
Miley hefur ekki verið alveg jafn hógvær með sín ástarmál en hún byrjaði á því að byrja með ungri stúlku og það endaði mjög fljótt. Núna er hún að hitta ástralska söngvarann Cody Simpson.
Miley var í einhverri lítilli aðgerð á dögunum og þá tóku þau þessa mynd af sér saman.