Katy Perry (35) og Orlando Bloom (42) eru ekki á leiðinni í hnapphelduna í þessum mánuði eins og planað var. Auðvitað hafa margir velt fyrir sér hvort allt sé ekki í blóma hjá þeim skötuhjúum, en heimildarmaður US weekly segir að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af þeim.
„Þau breyttu tímasetningunni vegna staðsetningarinnar. Þau eru svakalega ástfangin og njóta hverrar mínútu af brúðkaupsundirbúningnum, en þau verða með tvær veislur,“ segir heimildarmaðurinn og bætir við að Katy vilji verða ófrísk um leið og þau séu orðin gift.