Ég er sinnepssjúk það er fátt sem toppar gott sinnep!
Þessi frábæra dressing kemur frá henni Berglindi sem heldur úti síðunni lifandilif.is/ mæli sannarlega með innliti á síðuna.
Uppskrift:
Um 8 skammtar af sinnepdressingu:
1/4 bolli ferskur sítrónusafi
1 msk. + 1 tsk. Dijon sinnep
1/2 bolli Extra-Virgin olifu olía
Örlítið sjávarsalt
Fersk malaður pipar eftir smekk
- Öllu blandað saman og geymt í ísskáp í allt að tvær vikur.
Sáraeinfalt og sinnepsdressingin er góð ofan á brauð, með kjúkling og út á salat.