Fljótleg og einföld – og svakalega góð frá Allskonar.is
Linsubaunasúpa fyrir 4
- 1 msk ólífuolía
- 1 laukur, fínsaxaður
- 2 gulrætur, fínsaxaðar
- 2 greinar timian
- 2 hvítlauksrif, marin
- 1 rautt chili, fræhreinsað og saxað
- 1 tsk sinnepsfræ (brún eða gul)
- 3 tómatar, grófsaxaðir
- 100gr rauðar linsur
- 1L grænmetissoð
- 1 lárviðarlauf
- salt og pipar
Undirbúningur: 5 mínútur
Eldunartími: 30 mínútur
Hitaðu olíuna í stórum ootti og steiktu lauk, gulrætur og timian greinarnar þar til laukurinn fer að verða gullinn.
Bættu þá við hvítlauk, chili og sinnepsfræjum og steiktu í 2-3 mínútur. Hrærðu tómötunum saman við, linsubaununum og grænmetissoðinu. Þú getur notað 1L af vatni á móti 2 teningum af grænmetiskrafti, það má líka nota kjúklingasoð/kraft.
Settu lárviðarlaufið út í, lokið á pottinn og láttu sjóða við lágan hita í 25 mínútur, eða þar til linsubaunirnar eru orðnar mjúkar og auðvelt er að stappa þær. Taktu lárviðarlaufið og timian greinarnar upp úr.
Sjá einnig: Eggaldin- og risottobaka
Þú getur stappað súpuna, látið hana í blandara eða notað töfrasprota -eða hreinlega haft hana grófa og fallega svo að litirnir í gulrótunum og tómötunum fái að njóta sín.
Smakkaðu til með salti og pipar.
Það er rosalega gott að setja smá sýrðan rjóma eða jafnvel súrmjólk út í súpuna með smá rifnum sítrónuberki og fullt af nýmöluðum svörtum pipar.
Endilega smellið einu like-i á Facebook síðu Allskonar