Þjófur gerði sér lítið fyrir og stal antik listaverki af Austur-Indíafélaginu á dögunum. Jóhanna Preethi Gunnarsdóttir birti færslu á Facebook vegna þessa og segir hún að faðir hennar heitinn hafi valið þetta verk og augljóst að þetta hefur tilfinningalegt gildi.
Jóhanna biður þann sem stal verkinu að skila því án eftirmála og þá sem vita um verkið að láta hana vita.