Maðurinn minn sér alltaf um að elda jólamatinn á okkar heimili. Þó svo að hann sé frábær kokkur á hann það til að gleyma því hvernig á að elda hamborgarhrygginn þar sem hann gerir nú þetta bara einu sinni á ári. Því hefur skapast sú hefð að hann hringi í móðir sína til þess að skerpa uppá minnið.
Hér er einföld og klassísk uppskrift hvernig á að elda hrygginn góða fyrir Aðfangadag.
Hamborgarhryggur:
Aðferð:
Setjið hrygginn í pott með köldu vatni, látið suðuna koma upp og sjóðið rólega í 60 mín. eða þar til kjarnhitinn er orðinn um 62 gráður. Slökkvið undir pottinum og látið bíða í 30 mín. Skellið hryggnum í ofnskúffu með c.a. 1 líter af vatni. Hitið ofninn uppí 150 gráður og eldið hrygginn í c.a. 30-45 min eða þegar kjarnhitinn er orðinn 70 gráðir. Berið gljáann á hann ásamt ananashringjunum síðastu 10-15 min.
ATH: Ef soðið klárast bætið við soðnu vatni í skúffuna. Sigtið soðið og geymið fyrir sósu.
Gljái:
150 g púðursykur
2 msk. Dijon- sinnep
ananassafi úr dósinni með hringjunum
Öllu hrært saman og smakkaði ykkur áfram . Gott er að hjúpa hrygginn með gljáanum og elda síðustu 10-15 mín. eða þar til gljáinn er farinn að brúnast.
Látið hrygginn standa í u.þ.b. 15 mín. áður en hann er skorinn.