Þessi stígvél eru öðruvísi en flest stígvél sem við eigum að venjast! Þau eru þannig gerð að þú virðist vera berfætt í netasokkabuxum þegar þú ert það ekki í raun.
Þau eru frá Philip Lim og frekar töff, eru úr ekta leðri en kosta líka hálfan handlegginn.
Það er hægt að fá þau hér!
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.