Japanska markaðsfyrirtækið Absolute Territory er farið að borga japönskum stúlkum, 18 ára og eldri, fyrir að vera með auglýsingu á lærinu. Auglýsingarnar eru staðsettar milli mini-pilsins og háu sokkanna sem eru sívinsælir á þessum slóðum.
Síðan í nóvember í fyrra hafa 1.300 stúlkur skráð sig hjá fyrirtækinu og fjöldinn eykst stöðugt.
Eftir að hafa valið límmiða verður stúlkan að vera með hann á sér í minnst 8 klukkustundir á dag til þess að fá greidd laun. Til þess að sanna að þær séu að ganga með límmiðann á sér verða þær mjög reglulega að birta myndir af sér á Facebook, Twitter og öðrum samfélagsmiðlum.