Árið 1900
Sett lög um fjármál hjóna. Með þeim fékk gift kona yfirráð yfir eigin tekjum og eignum
Árið 1902
Konur fá kjörgengi til bæjarstjórna, með sömu skilyrðum og 1882
Árið 1904
Ný reglugerð fyrir Menntaskólann í Reykjavík (Lærða skólann) heimilaði stúlkum aðgang að skólanum og nutu þær þar með sömu réttinda og piltar til náms við skólann
Árið 1907
Kvenréttindafélag Íslands var stofnað af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur og fleiri baráttukonum 27. janúar
Árið 1907
Hafnfirskar verkakonur, sem unnu við fiskbreiðslu, fóru í verkfall og var það í fyrsta sinn sem konur fóru í verkfall, svo vitað sé.
Árið 1907
Kosningaréttur og kjörgengi til bæjarstjórna í Reykjavík og Hafnarfirði nær til fleiri kvenna en áður. Hann nær nú einnig til giftra kvenna, auk þess sem krafan um greiðslu í bæjarsjóð var lækkuð.
Árið 1908
Kvenréttindafélag Íslands og önnur kvenfélög í Reykjavík stóðu saman að kvennalista til
framboðs við bæjarstjórnarkosningarnar. Allar fjórar konurnar á listanum náðu kjöri í
bæjarstjórn. Þetta voru Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Guðrún Björnsdóttir,
Katrín Magnússon og Þórunn Jónassen
Árið 1909
Giftar konur í öllum sveitarfélögum fá kosningarétt og kjörgengi til jafns við ekkjur og ógiftar konur. Hjú fá kosningarétt en ekki kjörgengi
Árið 1910
Ásta Kristín Árnadóttir (1883-1955) lauk iðnmeistaraprófi í
Kaupmannahöfn, fyrst Íslendinga. Ásta var jafnfram fyrsta íslenska konan
sem lauk iðnnámi
Árið 1910
Laufey Valdimarsdóttir (1890-1945) varð stúdent fyrst kvenna sem sat í bekk í Lærða skólanum
Árið 1910
Solveig Jónsdóttir (1884-1962) frá Múla hlaut kosningu í bæjarstjórn Seyðisfjarðar. Hún hafði boðið fram á lista ásamt Margréti Björnsdóttur og hlaut listi þeirra rúm 36% atkvæða
Árið 1913
Kristólína Guðmundsdóttir Kragh (1883–1973) opnaði fyrstu hárgreiðslu- og snyrtistofuna hér á landi og rak hana til ársins 1946. Kristólína var fyrst kvenna til að læra hárgreiðslu, hárkollugerð, og hand- og fótsnyrtingu
Árið 1915
Konur 40 ára og eldri fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Aldurstakmarkið skyldi lækka um eitt ár næstu fimmtán árin þar til 25 ára aldri væri náð, en það var aldurstakmark kosningabærra karlmanna.
Árið 1917
Kristín Ólafsdóttir (1889–1971) lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands, fyrst kvenna. Hún var jafnframt fyrsta konan til að ljúka prófi frá Háskóla Íslands
Árin 1917-1924
Hjú fá kjörgengi í Reykjavík, á Akureyri og á Ísafirði
Árið 1920
Íslenskar konur og hjú full pólitísk réttindi 25 ára
Árið 1921
Elín Eggertsdóttir Briem (1856-1937) og Þórunn Jónassen (1850-1922) hlutu fyrstar kvenna riddarakrossa Hinnar íslensku fálkaorðu 1. desember 1921
Árið 1922
Ingibjörg H. Bjarnason (1867-1941) kosin á Alþingi, fyrst kvenna, af sérstökum kvennalista
Árið 1924
Katrín Thoroddsen (1896-1970) skipaður héraðslæknir, fyrst kvenna á Íslandi
Árið 1925
Þetta ár kom út sjálfsævisaga Ólafíu Jóhannsdóttur og var það í fyrsta sinn sem sjálfsævisaga konu var gefin út hér á landi
Árið 1926
Björg Caritas Þorlákson (1874-1934) varð fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi
Árið 1933
Ásta Magnúsdóttir (1888-1962) var skipuð ríkisféhirðir, fyrst kvenna.
Árið 1935
Auður Auðuns (1911-1999) lýkur prófi í lögfræði fyrst íslenskra kvenna. Sama ár er hún settur skiptadómari, í stað hins reglulega dómara, í skiptaréttarmáli á Ísafirði, það var í fyrsta sinn sem kona gegndi dómarastarfi
Árið 1935
Halldóra Briem Ek (1913-1993, síðar arkitekt) og Ingibjörg Böðvarsdóttir (1915-1996, síðar lyfjafræðingur) urðu fyrstar kvenna á Íslandi til að ljúka stúdentsprófi af stærðfræðibraut.
Árið 1939
Konur kepptu í fyrsta sinn um Íslandsmeistaratitil í skíðaíþróttum. Aðeins var keppt í svigi og varð Martha Árnadóttir Íslandsmeistari
Árið 1940
Halldóra Briem Ek (1913-1993) lýkur prófi sem arkitekt í Svíþjóð fyrst íslenskra kvenna
Árið 1941
Jóhanna Knudsen (1897-1950) var fyrsta kvenlögreglan hér á landi og starfaði í Reykjavík frá 1941-1943
Árið 1942
Elísabet Finsen (f. 1920) tók sveinspróf í múraraiðn, fyrst kvenna, í Esjberg í Danmörku
Árið 1945
Lög nr. 60 um laun starfsmanna ríkisins sett: Við skipun í starfsflokka og flutning milli launaflokka skulu konur að öðru jöfnu hafa sama rétt og karlar
Árið 1945
Jórunn Viðar (1918-2017) lauk prófi í tónsmíðum, fyrst kvenna, frá The Juilliard School of Music í New York
Árið 1945
Geirþrúður Hildur Bernhöft (1921-1987) lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands, fyrst kvenna. Hún lét ekki vígjast til prests
Árið 1946
Auður Proppé (f. 1921) og Elísabet Guðmundsdóttir (f. 1927) fyrstar kvenna til að taka próf frá Loftskeytaskóla Íslands
Árið 1946
Valgerður G. Þorsteinsdóttir (f. 1927) tók sólópróf í flugi, fyrst kvenna
Árið 1946
Teresía Guðmundsson (1901-1983) tók við stöðu veðurstofustjóra, fyrst kvenna
Árið 1948
Ólafía Jóhannesdóttir (1924-2017) lauk prófi varð þar með fyrsti íslenski fornleifafræðingurinn
Árið 1949
Tvær konur voru kosnar á Alþingi 23. – 24. október 1949 og var það í fyrsta skipti sem fleiri en ein kona sat á Alþingi á sama tíma. Þetta voru þær Kristín L. Sigurðardóttir (1898-1971), 9. landskjörinn þingmaður, og Rannveig Þorsteinsdóttir (1904-1987), 8. þingmaður Reykvíkinga 1952 Ragnheiður Guðmundsdóttir (1915-2012), læknir
Árið 1952
Ragnheiður Guðmundsdóttir (1915-2012), læknir, ráðin kennari við Háskóla
Íslands, fyrst kvenna. Hún kenndi lífeðlisfræði við tannlæknadeild til
ársins 1961
Árið 1952
Jakobína Valdís Jakobsdóttir (f. 1932) keppti fyrst íslenskra kvenna á heimsmeistaramóti á skíðum í Áre í Svíþjóð
Árið 1957
Hulda Jakobsdóttir (1911-1998) varð bæjarstjóri í Kópavogi og gegndi því
embætti til 1962. Hún var fyrst kvenna til að gegna bæjarstjóraembætti á
Íslandi
Árið 1958
Sett jafnlaunalög. Sérstakir kvennataxtar skyldu hverfa úr samningum verkalýðsfélaga næstu 6 árin
Árið 1959
Auður Auðuns (1911-1999) verður borgarstjóri í Reykjavík, fyrst kvenna
Árið 1958
Rannveig Þorsteinsdóttir (1904-1987) fékk leyfi til málflutnings fyrir hæstarétti, fyrst kvenna
Árið 1960
Kristín E. Jónsdóttir (f. 1927) hlaut sérfræðingsleyfi í lyflækningum,
fyrst kvenna. Varð einnig dósent við læknadeild Háskóla Íslands fyrst
kvenna 1976
Árið 1960
Selma Jónsdóttir (1917–1987) listfræðingur, varði doktorsritgerð við Háskóla Íslands, fyrst kvenna
Árið 1961
Ragnhildur Helgadóttir (1930–2016) var kosin forseti alþingis, fyrst kvenna
Árið 1963
Sigrún Helgadóttir (f. 1937) lýkur fyrri hluta prófi í verkfræði fyrst íslenskra kvenna
Árið 1963
Vigdís Björnsdóttir (1921-2005) var fyrsti lærði forvörðurinn hér á landi þegar hún hóf störf við handritaviðgerðir fyrir Þjóðskjalasafn, Landsbókasafn og Handritastofnun
Árið 1964
Sigríður Sigurðardóttir (f. 1942) handboltakona var fyrst kvenna til að vinna titilinn Íþróttamaður ársins.
Árið 1969
Margrét G. Guðnadóttir (1929-2018) skipuð prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Margrét varð þar með fyrst kvenna til að gegna embætti prófessors við háskólann
Árið 1970
Auður Auðuns (1911-1999) lögfræðingur varð fyrst kvenna ráðherra í ríkisstjórn Íslands þegar hún tók við embætti dóms- og kirkjumálaráðherra
Árið 1970
Fyrsti opinberi leikurinn í knattspyrnu kvenna fór fram árið 1970 þegar lið frá Keflavík og Reykjavík mættust í forleik að karlalandsleik Íslands og Noregs
Árið 1970
Rauðsokkahreyfingin stofnuð 19. október. Rauðsokkar tóku þátt í 1. maí göngu verkalýðsins þetta ár og vöktu mikla athygli
Árið 1970
Helga Kress (f. 1939) var sett lektor, fyrst kvenna, við heimspekideild Háskóla Íslands
Árið 1970
Margrét Ólöf Björnsdóttir (f. 1945) lauk B.S.-prófi í verkfræði- og raunvísindadeild, fyrst kvenna
Árið 1972
Auður Þorbergsdóttir (f. 1933) skipuð borgardómari í Reykjavík, fyrst kvenna
Árið 1973
Dóra Hlín Ingólfsdóttir (f. 1949) og Katrín Þorkelsdóttir voru fyrstu konurnar sem klæddust einkennisbúningi lögreglumanna og gegndu almennum lögreglustörfum.
Árið 1974
Auður Eir Vilhjálmsdóttir (f. 1937) vígð til prests, fyrst kvenna á Íslandi.
Árið 1974
Guðný Guðmundsdóttir (1948) varð konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, fyrst kvenna
Árið 1975
Kvennaár Sameinuðu þjóðanna. Ýmislegt var gert til að vekja athygli á árinu en mesta athygli vakti þó 24. október 1975, þegar íslenskar konur lögðu niður vinnu og flykktust á baráttufundi víðsvegar um landið. Í Reykjavík komu konur saman á Lækjartorgi þar sem haldnar voru ræður og fluttir baráttusöngvar. Talið er að 25-30.000 manns hafi verið þar samankomin, aðallega konur.
Árið 1975
Kvennasögusafn Íslands stofnað á heimili Önnu Sigurðardóttur í
Reykjavík við upphaf kvennaársins [árið 1996 opnaði það á
Þjóðarbókhlöðu]
Árið 1975
Samþykkt lög um þriggja mánaða fæðingarorlof fyrir allar konur
Árið 1975
Kvennafrídagurinn haldinn í fyrsta sinn.
Árið 1976
Lög nr. 78 um jafnrétti kvenna og karla sett. Lögin áttu að stuðla að
jafnrétti og jafnri stöðu karla og kvenna. Jafnréttisráð stofnað
Árið 1977
Ásta Hallgrímsdóttir (f. 1951) var fyrsta konan sem var ráðin sem flugmaður til flugfélags, Eyjaflugs Bjarna Jónssonar í Vestmannaeyjum
Árið 1978
Guðrún Ólafsdóttir (f. 1956) lauk sveinsprófi í rafvirkjun, fyrst kvenna
Árið 1980
Sigurrós Karlsdóttir (f. 1965), hlaut fyrst Íslendinga gullverðlaun á Ólympíuleikum fatlaðra þegar hún sigraði í 50 m bringusundi og setti bæði ólympíumet og heimsmet í greininni.
Árið 1980
Hjördís Björk Hákonardóttir (f. 1944), sýslumaður fyrst kvenna
Árið 1980
Vigdís Finnbogadóttir (f. 1930) kjörin forseti Íslands. Hún varð fyrst kvenna í heiminum til að gegna embætti þjóðkjörins forseta. Vigdís gegndi embætti til ársins 1996
Árið 1981
Hljómsveitin Grýlurnar var fyrsta kvennahljómsveitin
sem kom fram opinberlega hér á landi þegar þær tróðu upp í fyrsta sinn
10. apríl 1981
Árið 1982
Samtök um kvennaathvarf stofnuð; kvennaathvarf opnaði í Reykjavík
Árið 1982
Guðrún Erlendsdóttir (f. 1936) settur dómari við hæstarétt fyrst íslenskra kvenna. Árið 1986 var hún skipuð dómari. Árið 1978 var hún skipuð lektor við lagadeild Háskóla Íslands, fyrst kvenna
Árið 1983
Kvennalistinn var stofnaður og bauð fram í þremur kjördæmum við
alþingiskosningarnar. Þrjár konur voru kjörnar á þing fyrir
Kvennalistann, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir og
Kristín Halldórsdóttir
Árið 1985
Kvennafrídagurinn haldinn í annað sinn.
Árið 1986
Anna Sigurðardóttir (1908-1996), stofnandi og þáverandi forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands, hlaut heiðursdoktorsnafnbót við heimspekideild Háskóla Íslands, fyrst íslenskra kvenna.
Árið 1987
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (f. 1972) keppti á heimsmeistaramóti í skák, fyrst íslenskra kvenna
Árið 1988
Berglind Ásgeirsdóttir (f. 1955) varð fyrst kvenna til að gegna embætti
ráðuneytisstjóra er hún tók við því starfi í félagsmálaráðuneytinu
Árið 1988
Guðrún Helgadóttir (f. 1935) varð forseti sameinaðs þings, fyrst kvenna
Árið 1988
Banni við þátttöku kvenna í glímu aflétt.
Árið 1990
Stígamót stofnuð.
Árið 1991
Sigríður Á. Snævarr (f. 1952) tók við embætti sendiherra Íslands, fyrst kvenna, í Stokkhólmi
Árið 1991
Salóme Þorkelsdóttir (f. 1927) verður forseti Alþingis, fyrst kvenna
Árið 1993
Kvennakirkjan stofnuð
Árið 1993
Neyðarmóttaka vegna nauðgana stofnuð.
Rannveig Rist (f. 1961) ráðin forstjóri Íslenska álfélagsins hf. árið 1996 og tók hún við starfinu árið 1997. Það mun vera í fyrsta skipti sem kona gegnir starfi forstjóra hjá iðnfyrirtæki af þessari stærðargráðu á Íslandi
Árið 1997
Helga Kress (f. 1939) skipuð forseti heimspekideildar við Háskóla Íslands, fyrst kvenna til að gegna embætti deildarforseta við háskólann
Árið 1998
Bríet, félag ungra femínista stofnað.
Árið 1998
Guðfinna S. Bjarnadóttir (f. 1957) ráðin rektor Háskólans í Reykjavík, fyrst kvenna til að bera titil rektors.