Þessar bláberjamuffins eru æðilega góðar. Þær eru mjög mjúkar, með ostakökufyllingu og „kröntsí“ topp.
Innihald
Toppurinn
3 msk brætt smjör
100 gr sykur
60 gr hveiti
1⁄4 tsk salt
Ostakökufylling
225 gr rjómaostur
100 gr flórsykur
Muffins
2 egg
200 gr sykur
125 ml olía
1 msk vanilla extract
1 tsk edik
125 ml mjólk
1 tsk matarsódi
½ tsk salt
240 gr hveiti
250 gr sýrður rjómi
190 gr bláber, frosin eða fersk
Aðferð
- Byrjum á að gera toppinn. Bræðið smjörið í lítilli skál og bætið svo við sykur, hveiti og salt. Blandið saman með gaffli og geymið á borðinu.
- Svo gerum við ostakökufyllinguna. Hrærið saman á miðlungs hraða í hrærivélinni. Geymið þar til á eftir.
- Næst skaltu þeyta egg og sykur í hrærivél í smástund. Bætið svo við olíu, mjólk, vanillu og ediki. Blandaðu saman hveiti, salti og matarsóda í eina skál og blandaðu saman við hina blönduna. Ekki nota hrærivélina til að blanda saman en best er að nota sleif eða sleikju. Svo er sýrða rjómanum bætt við á sama hátt og seinast eru bláberin sett útí.
Nú er komið að því að setja allt saman í muffins formin. Settu eina matskeið af deiginu í form, svo kemur 1 tsk af ostakökufyllingunni, bætið við 1 matskeið af deigi ofan á ostakökufyllinguna og svo toppurinn mulinn ofan á.
Bakist við 170 gráður í um það bil 15-18 mínútur eða þangað til þær verðu gullinbrúnar.
Sjá einnig:
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.