Ég hef alltaf haldið upp á Ítalíu á Laugaveginum. Staðurinn er lítill og heimilislegur og ótrúlega huggulegur og kósý. Ég mætti þarna á föstudagskvöldi án þess að vera búin að panta borð og bjóst ekkert endilega við að fá borð en við ákváðum að láta á það reyna. Við þurftum að bíða mjög stutt og sátum í setustofu á meðan.
Maturinn var bragðgóður og skammtarnir stórir og allir fengu nóg í magann. Reyndar pöntuðum við hvítlauksbrauð á undan sem var ekki nógu mikið bragð af en annað var bara meiriháttar. Við tókum það fram við þjóninn að brauðið væri ekki að standast væntingar okkar og við vorum ekki látin borga fyrir það.
Þjónustan var persónuleg og mátulega hröð.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.