Stjörnuspá fyrir júní 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Þú ert mjög sjálfstæður einstaklingur og það vinnur með þér og aðrir fylgja þér eftir. Það getur verið að það verði miklar ryskingar á vinnustaðnum en það mun allt fara vel.

Þessi mánuður verður mánuðurinn þar sem þú byrjar með hreinan skjöld. Losaðu þig við óheilbrigð sambönd og hluti og einbeittu þér að því að hafa fólk í kringum þig sem er gott fyrir þig. Þetta getur tekið á en er sannarlega þess virði. Það verður einhver ólga í vinahópnum þínum en þetta mun allt leysast á farsælan hátt.

Ástarmálin verða örlítið flókin þangaði til um miðjan mánuðinn. Ef grunnurinn er sterkur mun sambandið þitt lifa það af, en bara ef grunnurinn er sterkur.