Stjörnuspá fyrir september 2024 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Það er nú kominn tími fyrir þig til að velta fyrir þér hver markmið þín eru í lífinu þínu. Þú hefur komist að því að þú ert sjálfstæður, áhrifamikill einstaklingur og getur látið magnaða hluti verða að veruleika ef þú einsetur þér það. Þú átt frábært fólk í kringum þig sem veita þér athygli og umhyggju þegar þú þarft á að halda.

Heilsan þín skiptir miklu máli og það er mikilvægt að finna jafnvægi milli hugar og sálar. Það er algjört lykilatriði fyrir þig þegar kemur að því að eiga heilbrigðari og heilsteyptari sambönd. Finndu þér dagsdaglega rútínu sem hjálpar þér að beina athyglinni að því að fyllast jákvæðri orku til sjálfs/rar þín. Prófaðu til dæmis að stunda núvitund og huga að daglegri rútínu þinni. Jafnvel getur verið góð hugmynd að slökkva á tilkynningum í símanum þínum, því þær valda áreiti og truflunum.