Stjörnuspá fyrir september 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní — 22. júlí

Ef þú ert sífellt með svartsýnar hugsanir mun það halda aftur af þér í öllu sem þú gerir. Opnaðu huga þinn og stundaðu þakklæti. Það kann að hljóma skringilega en ef þú tekur 5 mínútur á hverju kvöldi til að íhuga fyrir hvað þú ert þakklát/ur í lífinu þínu, mun það auka hamingju þína.

Stundum er gott að leyfa fólki að vita hvernig þér líður og koma tilfinningum þínum í orð. Í stað þess að forðast vandamálin og fela þig frá heiminum, skaltu takast á við vandamálin sem fyrir hendi eru. Það getur hljómað krefjandi en það er vissulega minna krefjandi en að fara með vandamálin á koddann á hverju kvöldi.