Stjörnuspá fyrir september 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar — 20. mars

Þú ert oft efins þegar kemur að breytingum en þær breytingar sem eru að verða núna eru bara til hins góða. Leyfðu þér að elska og vera elskuð/aður. Þú munt fá eitthvað tilboð í þessum mánuði, sem erfitt er að segja nei við. Ekki vera of tortryggin/n eða svartsýn/n því það er bara streituvaldandi og ekki gott fyrir heilsuna þína. Fylgstu vel með mataræði þínu og haltu þig frá óhollustunni.

Ef þú ert í hamingjusömu sambandi mun það halda áfram að blómstra og þú skalt leyfa þér að njóta þess og sýna þakklæti fyrir það sem lífið hefur upp á að bjóða.