Stjörnuspá fyrir september 2024 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember — 19. janúar

Einbeiting þín og andlegur fókus mun vinna með þér í september en þú gætir verið að fara að takast á við ný verkefni sem munu víkka hjá þér sjóndeildarhringinn, auka vitneskju þína og jafnvel verða til þess að þú munir ferðast eitthvað eða taka gott frí. Lífið er alltaf að gerast. Við getum ekki stoppað það en við höfum val um hvernig við bregðumst við því.

Stundum finnst þér kannski að það sé best að loka sig bara af og takast ekki á við neitt en þannig missum við af bestu hlutum lífsins.