Söfnun fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar

Aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar, tíu ára stúlku sem fannst látin sunnudagskvöldið 15. september, hafa efnt til söfnunar fyrir móður stúlkunnar á þessum erfiðu tímum.

„Hjörtun okkar eru brotin, þar sem ljósið hennar Kolfinnu Eldeyjar okkar slökknaði allt of snemma. Kolfinna Eldey var 10 ára dásemdarstelpa. Hún var óendanlega ljúf og hjartahlý stelpa, með endalausa sköpunargáfu,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum.

Styrktarreikningurinn er í nafni móður Kolfinnu Eldeyjar:

  • Reikningsnúmer: 0192-26-21239
  • Kennitala 170483-4569

Að lokum er fólk beðið um að kveikja á kerti fyrir Kolfinnu.

„Ljósið lifir í minningu hennar og í hjörtum okkar allra.“

SHARE