„Húðin þín er fallegri en þú áttar þig á“ – 
Það er það sem gerir ERBORIAN öðruvísi!

Erborian er ungt og ferskt Suður Kóreskt snyrtivörumerki sem  framleiðir húðvörur úr kóreskum lækningajurtum. Vörurnar eru allar náttúrulegar og það eru engar prófanir gerðar í dýrum við framleiðslu þeirra. Húðlínan þeirra er breið og mjög aðlaðandi. Erborian er leiðandi í litaleiðréttingakremum og komu fyrstir á markað með BB krem sem hefur margfalda virkni. Það gefur flauelsmjúka þekju, inniheldur Ginseng sem eykur kollagen og teygjanleika húðarinnar ásamt því að vera með sólarvörn. Rétt á eftir komu þeir með á markað CC kremin en CC stendur fyrir „Color Corrector“, en það inniheldur lækningajurtina Centella sem verndar, styrkir og mýkir ásamt því að hafa breytanleg litarefni sem aðlaga sig að náttúrulegum litatón og gefur fallega bjarta þunna þekju. Það hefur að sama skapi góða sólarvörn. Þessi litaleiðréttingakrem eru söluhæstu krem sinnar tegundar í Sephora í Evrópu.

Það sem aðgreinir Erborian frá öðrum húðvörumerkjum er að þeir leggja aðal áherslu á að viðhalda heilbrigðri húð frekar en að hylja vandamál með förðun. Góð og vönduð húðumhirða með gæða hreinsivörum, raka- & næringagjöfum og náttúrulegum farða sem er líka virk húðvara er þeirra aðalsmerki. Litaleiðréttingakremin eins og CC – línan er feykilega vinsæl um allan heim enda hefur náttúrulegt ferskt útlit verið mikið í tísku. Erborian er ekki bara húðvörulína heldur miklu frekar 
„SKIN THERAPY“.

„Þetta er þín húð vertu stolt af henni“


ERBORIAN hefur náð miklum vinsældum á stuttum tíma og eru margar ástæður fyrir því. En aðal ástæðan snýr að gæðum og áherslunni á að viðhalda heilbrigðri húð og leyfa ljóma húðarinnar að skína í gegn. Kjörorð þeirra segir allt sem segja þarf: „Þetta er þín húð vertu stolt af henni“ og „Húðin þín er fallegri en þú áttar þig á“. Áherslan hjá þeim er alltaf að koma þeim skilaboðum á framfæri að það eru allir fallegir ef sjálfsöryggið er í lagi. Að styrkja sjálfstraust í eigin skinni og vera besta útgáfan af sjálfum sér með því að huga vel að húðumhirðu og viðhalda heilbrigði húð telja þeir lykilatriði. Þeir fagna fjölbreytileikanum og nota til dæmis aldrei filtera í sitt markaðsefni þar sem þeir vilja ná því fram að húðin þarf ekki að vera fullkomlega lýtalaus til að vera falleg. Það að hafa séreinkenni er flott og sýnir sjálfstraust og engin ein útgáfa af manneskju er fallegri eða betri en önnur.


EROBORIAN notar náttúruleg einstök innihaldsefni sem eru flokkaðar sem lækningajurtir í Suður Kóreu. Þekktustu innihaldsefnin eru: Centella asiatica, Bambus, Gingseng, sítrusávöxin Yusa og Red Pepper svo dæmi séu tekin. Þessi innihaldsefni hafa róandi, rakagefandi og hafa húðbætandi eiginleika. Vörurnar eru mildar, mjúkar og hafa ljúfan ilm jurtanna.

Nýsköpun og fjölbreytni í vörum


ERBORIAN er þekkt fyrir að vera í fararbroddi í þróun nýrra innihaldsefna og formúla. Dæmi um slíka nýsköpun eru BB-krem, CC- krem, Sheet maskar og serum sem hafa orðið gríðalega vinsæl um allan heim. Þessar vörur bjóða upp á fjölbreytni og skapandi lausnir fyrir mismunandi húðgerðir. Þau leggja áherslu á að jafna húðtón og ná fram þannig náttúrulegu, frísku yfirbragði.

Fagurfræði og hönnun


Suður-kóreskar snyrtivörur leggja áherslu á fallegar og aðlaðandi umbúðir, sem bætir sannarlega upplifunina og þar er Erborian engin undantekning. Hönnun umbúða hjá þeim er litrík og skemmtileg, sem gerir snyrtivöruhilluna fallegri og/eða snyrtivörubudduna skemmtilega litríka sem setur alltaf bros á varirnar.

Erborian fæst í öllum Hagkaupsverslunum, Beautybox, Shay Selfossi, Heimadecor Vestmannaeyjum, Verslunni Bjarg Akranesi. Efstaleitisapóteki, ÍslandsApóteki og Lyfjaver.

SHARE