Stjörnuspá fyrir október 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Þig langar að eyða peningum í október, hvort sem þú átt þá til akkúrat núna eða ekki. Þú finnur alltaf leið til að borga þínar skuldir. Þrjóskan í þér gæti komið þér í vandræði í þessum mánuði, eins og svo oft áður, en mundu bara að þú þarft ekki alltaf að eiga seinasta orðið.

Hættu að efast um sjálfa/n þig og reyndu að auka sjálfsöryggi þitt og þá munu þér ver allir vegir færir í framhaldinu. Taktu þér þinn tíma í þetta og vertu viss um að þú sért í góðu andlegu og líkamlegu formi áður en þú tekst á við nýjar áskoranir.