Stjörnuspá fyrir október 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní — 22. júlí

Október er kjörinn mánuður til að skipuleggja framtíð þína og láta drauma þína verða að veruleika. Þú hefur sterka réttlætiskennd kæri Krabbi og það er eitthvað í þínum innsta hring sem þér finnst vera óréttlátt og þú getur ekki sætt þig við það lengur.

Það getur komið þér örlítið út af sporinu ef þú leyfir öðru fólki að segja þér í hvað þú ættir að gera í frítíma þínum þínum eða að hverju þú átt að einbeita þér. Lifðu lífinu eins og þú vilt, þó það sé ekki nákvæmlega í samræmi við það sem aðrir ráðleggja þér.