Stjörnuspá fyrir október 2024 – Vogin

Vogin
23. september — 22. október

Þú ert að fara að taka eitthvert samband sem þú átt í, yfir á næsta stig. Ekki láta óöryggi þitt flækjast fyrir því sem hjarta þitt vill.

Sýndu þinn innri, sanna persónuleika alla daga og veittu því eftirtekt þegar þú ert farin/n að breyta hegðun þinni eða halda aftur af þínum skoðunum til að þóknast öðru fólki. Þú munt komast að því að fólkið sem elskar þig fyrir það hver og hvernig þú ert, mun verða enn nánara þér en ella og tengingin verður mun dýpri.