Stjörnuspá fyrir október 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Þú ert eitt af þeim stjörnumerkjum sem átt erfitt með að vera kyrr. Núna er samt alveg kjörinn tími til að hlaða rafhlöðurnar þínar. Slakaðu svolítið á, lestu góða bók eða sinntu einhverjum skapandi áhugamálum.

Þú ert að fara að demba þér í einhverskonar skapandi vinnu elsku Bogmaður, en þá verður þú líka að læra að taka gagnrýni. Þér finnst gaman að fá hrósið en finnst erfiðara að taka við hinu andstæða. Það er allt í lagi að vera ekki „fullkomin/n“, það er það enginn.