Hrúturinn
21. mars – 19. apríl
Margt sem þú hefur komist að, á undanförnum mánuðum, mun koma fram í dagsljósið og verða rætt í nóvember. Það er aldrei neinn „góður tími“ til að ræða suma erfiða hluti en þú þarft bara að vera heiðarleg/ur og tala hreint út.
Leitaðu uppi tækifæri til að bæta fjárhag þinn og starfsferil. Nánd við fólkið þitt getur orðið meiri og ekki vera feimin/n við að vera berskjölduð/aður og vertu heiðarleg/ur við aðra varðandi þínar fyrirætlanir.