Ljónið
23. júlí — 22. ágúst
Heimilið og fjölskyldan eru í forgrunni hjá þér og flutningar geta verið í kortunum. Þið gætuð jafnvel verið að hugsa um að bæta við fjölskylduna, hver veit? Þeir sem þekkja þig í raun og veru, vita að þú ert ekki alltaf í stuði. Þú átt það til að vera djúpt hugsi og þyngra yfir þér og það er alveg leyfilegt líka. Farðu í heilsurækt og í eitthvað dekur.
Þegar kemur að sköpunargáfu þinni ertu í „essinu þínu“ svo þú ættir að fylgja hjarta þínu og leyfðu ástríðunni að leiða þig.