Meyjan
23. ágúst — 22. september
Vertu svolítil drottning þennan mánuðinn kæra Meyja. Þó þú sért yfirleitt of feimin til að vera miðpunktur athyglinnar, þá er tími til kominn að breyta því. Þú horfist í auga við ótta þinn, kemur fjármálum þínum í rétt horf og notar hæfileika þína. Nýttu þér kunnáttu þína og getu og það mun opna tækifæri fyrir þig.
Einbeittu þér að því að styrkja sjálfa/n þig og það mun hafa góð áhrif á sambandið þitt. Við eigum öll okkar sár og þú verður að passa að nota ekki ástina sem plástur heldur takast á við gamla drauga.