Stjörnuspá fyrir nóvember 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Þú ert hress týpa en í nóvember er komið að þér að hvílast og hlaða batteríin. Undirmeðvitund þín er svo virk að þú þarft oft að vera ein/n til að geta tengst innsæi þínu. Þú átt það til að vera alltaf að plana framtíðina. Þú hugsar fram í tímann, lætur þig dreyma og tekur áhættur. Nú er kominn tími til að slaka á og skoða það sem hefur gerst undanfarið ár.

Sköpunarkraftur þinn kviknar á ný sem getur leitt þig til nýrra og spennandi ævintýra, sem og ástarævintýra. Mundu að þegar þú ert glettin/n og skapandi er kynþokki þinn í hámarki.