Stjörnuspá fyrir nóvember 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar — 20. mars

Þessi mánuður á að vera tileinkaður hugmyndinni um tengingar og tilfinningalegar skuldbindingar. Þó það geti verið ógnvekjandi og óþægilegt, getur það líka verið mjög gefandi. Eitthvað sem þú hefur verið að vinna hörðum höndum að, gæti borið sinn ávöxt í nóvember. Það mun auka sjálfstraust þitt. Að minnsta kosti muntu fá tækifæri sem þú hefur ekki fengið áður, sérstaklega ef þú tekur frumkvæði.

Þú þarft að passa að hugsa vel um þig og ekki bara að hugsa vel um aðra. Ástin er töfrandi og stundum verða töfrarnir til, bara með því einu að ákveða að eyða ævinni með einhverjum.