Stjörnuspá fyrir nóvember 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Ef þig vantar að rífa þig upp er gott að huga að heilsunni þinni núna og takast á við hluti sem þú hefur verið að fresta. Sambönd og samskipti við aðra verða einfaldari enda er „sjarmi“ þitt ómótstæðilegur.

Vöxtur er eitthvað sem við skiljum ekki alltaf en er nauðsynlegur. Markmiðið þitt ætti bara að taka hverjum degi eins og hann kemur og aldrei að sætta þig við minna en þú átt skilið. Stattu með sjálfum/ri þér og hættu að vera alltaf svona svakalega „næs“.