Íslenskur karlmaður, sem er með 4. stigs krabbamein, býr um þessar mundir í bílnum sínum eftir að hann skildi við barnsmóður sína. Eftir skilnaðinn, í september, hefur hann verið á lista fyrir félagslega íbúð en ekkert virðist vera að gerast í þeim málum. Yngsta barnið hans er 7 ára og getur hann ekki verið með barninu vegna ástandsins.
Heimilislæknir mannsins er búinn að senda vottorð og krabbameinsdeildin og sálfræðingurinn yfir því hversu staðan hans er alvarleg og allir hafa miklar áhyggjur af stöðu hans eins og hún er í dag. Maðurinn hefur ekki mikið bakland og þess vegna mjög mikilvægt að maðurinn fái hjálp sem allra fyrst.
Ef þú lesandi góður, ert með aðsetur fyrir þennan mann gætir þú verið að bjarga lífi hans. Af því að maðurinn vill ekki koma fram undir nafni, bið ég þá sem geta veitt hjálparhönd að senda á mig tölvupóst á kidda@hun.is
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.