Pete Davidson kominn í sína aðra meðferð á þessu ári

Samkvæmt Page Six er Pete Davidson (31) komin í meðferð í annað sinn á þessu ári. Hann hefur verið í stuttu sambandi með Maria Georgas, úr The Bachelor en heimildarmaður Page Six vill ekki meina að þessi meðferð tengist þeirra sambandi á nokkurn hátt.

„Hann skráði sig inn í meðferð í Florida frekar nýlega,“ sagði heimildarmaður US Sun og bætti við að Pete hefði flogið á einkaþotu til Florida. „Hann er í frekar slæmu ásigkomulagi í þetta skipti. Hann er ekki á góðum stað.“

Samkvæmt þessum sama heimildarmanni hætti Pete að hitta Maria rétt áður en hann skráði sig inn í meðferð og að þau hefðu bara verið að hittast í tvo mánuði.


Sjá einnig:

SHARE