Hrúturinn
21. mars – 19. apríl
Desember verður viðburðaríkur mánuður fyrir þig, Hrútur. Þú finnur fyrir innblæstri í nýjum verkefnum, sérstaklega tengdum vinnu eða sjálfsvinnu. Taktu þér tíma til að njóta aðventunnar og samverustunda með fjölskyldunni. Fjármálin gætu krafist aukinnar athygli; passaðu að eyða ekki um efni fram. Þú ert ótrúlega einbeitt/ur og eins ákveðin/n og alltaf en ættir að nota jólafríið til að láta lítið fyrir þér fara, hvíla þig og endurhlaða batteríin, frekar en að reyna rembast eitthvað.