Skemmdir voru unnar á um tíu bifreiðum á Seltjarnarnesi um miðjan síðasta mánuð, en þær voru allar kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Austurströnd þegar verknaðurinn átti sér stað.
Þar var á ferðinni skemmdarvargur sem rispaði allar bifreiðarnar með einhvers konar áhaldi – svo mikið tjón hlaust af.
Svo virðist sem hinn óprúttni aðili hafi verið á ferðinni oftar en einu sinni, en bifreiðarnar, sem urðu fyrir barðinu á skemmdarvargnum, voru við Austurströnd 2-10.
Þau sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangiðgudmundur.petur@lrh.is
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.