Samkvæmt frétt á vef lögreglunnar kemur fram að tilkynningum til lögreglu hefur fjölgað verulega ef marka má skýrslu ríkislögreglstjóra.
Skýrsla ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot hefur verið birt. Í skýrslunni má finna upplýsingar um fjölda tilkynninga til lögreglu vegna kynferðisbrota árið 2024. Tilkynnt brot voru 568 talsins, sem er 10% aukning tilkynninga frá 2023.
Lögreglan skráir bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu þar sem í hluta mála líður langur tími þar á milli. Í fyrra var tilkynnt um 185 nauðganir til lögreglu og þar af 130 sem áttu sér stað á árinu. Tilkynningum um nauðganir fjölgaði um 3% miðað við árið 2023. Ef horft er til meðaltals tilkynninga síðustu þrjú ár þar á undan, fækkaði þeim um 14%.
Mikill aldursmunur milli brotaþola og grunaðra
Konur voru 88% brotaþola í öllum kynferðisbrotum sem tilkynnt voru til lögreglu. Hlutfallið var enn hærra þegar horft var til nauðgana, þar voru 95% brotaþola kvenkyns. Hlutföllin snúast við þegar kemur að kyni grunaðra, þar voru 94% karlkyns í kynferðisofbeldismálum sem tilkynnt eru til lögreglu.
Töluverður aldursmunur var á milli brotaþola og grunaðra. Meðalaldur brotaþola var 23 ár, á meðan meðalaldur grunaðra var 34 ár. Um 46% brotaþola voru undir 18 ára í öllum kynferðisbrotum á meðan 12% grunaðra voru undir 18 ára. Hlutfall brotaþola undir 18 ára í nauðgunarbrotum var 36% og hlutfall grunaðra undir 18 ára var 17%.
Alls var tilkynnt um 126 kynferðisbrot gegn börnum og samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára var 6% fjölgun slíkra mála. Tilkynningar um barnaníð voru 40, sem er rúm 22% fjölgun slíkra tilkynninga samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára þar á undan.
Fjölgun tilkynninga og fækkun brota
Eitt af meginmarkmiðum lögreglunnar undanfarin ár hefur verið að hlutfall þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðisbrotum og tilkynna það til lögreglu aukist um leið og kynferðisbrotum fækki. Í þolendakönnun lögreglunnar árið 2023 meðal 18 ára og eldri kom fram að 1,9% svarenda höfðu orðið fyrir kynferðisbroti (þvingað eða reynt að þvinga til kynferðislegra athafna, gripið í eða verið snert kynferðislega gegn vilja sínum). Þar af höfðu 10% tilkynnt það til lögreglu. Hæsta hlutfall þeirra sem svöruðu voru á aldrinum 18-25 ára, eða 11% svarenda. Um 0,6% höfðu orðið fyrir stafrænu broti þar sem nektarmyndum var deilt af þeim án leyfis á netið (6 svarendur í könnuninni), og um 43% þeirra sögðust hafa tilkynnt það til lögreglu, en hafa verður í huga að fáir svöruðu spurningunni.
Þá svöruðu 6,5% þátttakanda því til að þau hefðu orðið fyrir eltihrelli, þar af hafði gerandinn verið í helmingi tilvika kunningi eða ókunnugur.
Í mælaborði farsældar sem byggist á svörum nemenda í grunnskólum í rannsókn Íslenskra æskulýðsrannsókna kemur fram að 16% 13-16 ára nemenda sögðust hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og 36% fyrir stafrænu kynferðisofbeldi.
Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Sjá einnig leiðarvísir um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu á ofbeldisgátt 112.is.
—
Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í síma 444-2570 eða helena.sturludottir@logreglan.is
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.