Í tilkynningu frá lögreglu er varað við fíkniefnum sem eru í dreifingu á Íslandi. Þar segir að nýlega hafi verið lagt hald á MDMA (ecstasy) töflur á leið til landsins en við rannsókn á töflunum kom í ljós að þær innihéldu tvöfalt meira magn MDMA en meðaltalsstyrkur haldlagðra efna hefur verið. Þessar töflur eru kallaðar „Punisher“ og eru rauðbleikar á litinn. Lögregla hefur einnig upplýsingar um að sambærilegar bláar töflur séu seldar hérlendis en þær kunna að vera enn sterkari.
Þá hefur lögreglan orðið vör við falsað lyf sem selt er sem Xanax sem er kvíðastillandi. Virka efnið í Xanax er Alprazolam en hinar fölsuðu pillur innihalda í raun efnið Flualprazolam. Til rannsóknar er dauðsfall hér á landi þar sem grunur leikur á að inntaka á lyfinu hafi leitt til þess. Þær fölsuðu Xanax pillur sem lögreglan hefur lagt hald á hér á landi voru gular að lit.
Þess ber að geta að útlit bæði MDMA og Xanax taflna getur verið mismunandi.
Sjá einnig:
- Stjörnuspá fyrir febrúar 2025
- Barnið: Hvaða áhrif hefur það að horfa á foreldra sína rífast?
- Grunur um að dauðsfall á Íslandi tengist kvíðalyfjum
- Íslenskukorn vikunnar – Að verða var við eitthvað
- Hvað er í gangi með málið milli Blake Lively og Justin Baldoni
- Tilkynningum um kynferðisbrot hefur fjölgað verulega hér á landi