Stjörnumerkin: Hvað gerir þig aðlaðandi? – Vogin

Það hafa allir eitthvað við sig sem einhverjum kann að finnast aðlaðandi, en hvað er það sem einkennir þitt stjörnumerki.

Vogin

23. september – 22. október

Vogin getur verið örlítið hégómafull eins og Ljónið en er samt tignarleg í flestu sem hún gerir. Hún er næstum því alltaf hlutlaus og á ekki erfitt með að eignast vini því hún er yfirleitt sú sem stillir til friðar í hópnum.

Vogin elskar að sameina fólk á friðsamlegum forsendum.