
Þessar kjötbollur gæla við bragðlaukana og koma frá Ragnheiði á Matarlyst.
Bollur hráefni
1 kg hakk, ég mæli með 500 g af nauta + 500 af svínahakki.
4 vorlaukar skornir niður
2.5 dl brauðraspur
4-6 hvítlauksrif pressuð
2 msk engifer pressað
2 egg
2 tsk sesamolía
1 tsk salt
1 tsk svartur pipar malaður
Aðferð
Setjið öll hráefin í skál blandið vel saman, mótið hæfilega stórar bollur.
Bollurnar fara inn í 200 gráðu heitan ofninn í 15-20 mín.
Gljái/sósa hráefni
12 msk hosin sósa
12 msk hunang
6 msk soya sósa
1 ½ -3 tsk sriraha sósa (eftir smekk)
Aðferð
Blandið öllu saman í skál hrærið vel saman.
Setjið gljáann á pönnu rétt hitið. Setið heitar bollurnar út á, veltið þeim uppúr gljáanum, þegar þær eru hjúpaðar eru þær klárar.
Chili mæjó dressing
Hráefni
2 dl sýrður rjómi
1 dl chili mæjó
Aðferð
Setjið saman í skál og hrærið saman. Það er um að gera að smakka sósuna til bæta jafnvel örlítið meira af chili mæjó allt eftir smekk.
Grænmeti
Asísk blanda
2-4 msk hrísgrjóna vineger (Rice vineger)
Aðferð
Grænmeti ásamt hrísgrjóna víni er sett á pönnu og hitað saman um stund.
Annað meðlæti
Hrísgrjón elduð samkvæmt leiðbeiningum, en dásamlegt er að setja 1 kókosmjólk eða kókosrjóma út í pottinn í bland við vatnið.
Sesamfræ
Vorlaukur skorinn niður
Ég raða í skálina í þessari röð.
Hrísgrjón
Grænmeti
Kjötbollur
Dass af vorlauk
Chili mæjó dressing
Sesamfræ

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.