Hún elsku Lindsay okkar Lohan var dæmd til þess að fara í þriggja mánaða áfengismeðferð sem á að hefjast 2. maí. Hún er samt ekki alveg til í að fara í meðferð alveg strax. Hún hefur verið að reyna að tefja þetta með ýmsu móti.
Fyrst bað hún um að fá að fara í meðferðina í New York og það var samþykkt, en núna er hún að biðja um að fá að fara í meðferðina í Kaliforníu og segist vera að leita sér að meðferðarstöð þar. Með þessu móti gæti hún frestað þessu enn meira en það er alls ekki víst að þetta verði nokkuð samþykkt.