Catherine Zeta- Jones, 43 ára, er komin í 30 daga meðferð við geðhvarfasýki samkvæmt People. Talsmaður hennar segir að Catherine hafi látið leggja sig inn í gær, mánudag, til þess að láta skoða og meta ástand sitt betur, en hún sagði frá því árið 2011 að hún væri haldinn þessum geðhvarfasýki.
Catherine hefur alltaf talað mjög opinskátt um sjúkdóminn og vonast hún að með því geti hún minnkað fordóma gagnvart þeim sem eru haldnir honum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.